Blómkálsmús og kryddaðar baunir
- Vegan: Já
Uppskrift
Þessi einfalda máltíð er tilbúin á 30 mínútum. Blómkálið er skorið niður og bakað í ofni, og á meðan sultum við laukinn og snöggsteikjum baunirnar og grænmetið. Svo maukum við blómkálið og þá er allt tilbúið.
- 2 blómkálshöfuð, skorin í frekar litla bita
- sjávarsalt og pipar
- 2-3 msk ólífuolía eða jurtasmjör
- 1 msk curry paste
- 1 dós kjúklingabaunir
- smá olía til að steikja upp úr
- ½ spergilkálshöfuð, skorið í litla bita
- 3 gulrætur, skornar í þunnar sneiðar
- smá olía til að steikja upp úr
- 1 rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
- 1 sítróna (lífræn), skorin í sneiðar
- 2 msk eplaedik, lífrænt
- 2 msk vatn
- 2 msk hlynsíróp
- 2 msk sítrónusafi
- ½ tsk sjávarsalt
Blómkálsmús
Hitið ofninn í 180°C
Setjið blómkálsbitana á bökunarpappír í ofnskúffu og kryddið með sjávarsalti og svörtum pipar.
Gott að skvetta smá olíu yfir og 1 msk af vatni.
Bakið við 180°C í um 15 mín eða þar til blómkálið er orðið mjúkt.Gott er að undirbúa meðlætið á meðan blómkálið bakast, áður en blómkálið er maukað.
Setjið blómkálið í matvinnsluvél ásamt ólífuolíu eða jurtasmjöri og maukið þar til verður að mús.Kryddaðar kjúklingabaunir
Setjið smá olíu á pönnu og bætið karry maukinu út á og hrærið því saman við olíuna.
Sigtið vatnið frá kjúklingabaununum og bætið þeim út á, steikið í 3-4 mín.Grænmeti
Hitið olíu á pönnu og steikið grænmetið í nokkrar mínútur.
Sultaður laukur
Setjið laukinn í krukku með sítrónunni.
Hellið restinni af uppskriftinni yfir, setjið lokið á og hristið. Látið standa í smá stund.
Sultaði laukurinn geymist vel í kæli.